30 daga skilaréttur — sendum til 30 landa
Fara beint í efnið
Harmonix

Símtöl og hljóð í vinnunni. Eyrun opin.

Snjallgleraugu og opin heyrnartól fyrir starfsfólk sem talar í síma, vinnur með höndunum og hittir fólk allan daginn.

SonaVue snjallglerauguTravelerAI opin heyrnartólElevate heyrnartæki

Dragðu til að snúa
Listaverð frá 14.990 kr.

Það sem skiptir máli á vinnustað

Handfrjáls símtöl

Ýtt er einu sinni á arminn eða heyrnartólið til að svara. Síminn verður eftir í vasanum.

Opin hlustun

Ekkert fer inn í eyrað. Starfsfólk heyrir áfram í samstarfsfólki, viðskiptavinum og því sem gerist í kring.

Engin myndavél

Engin myndavél er í gleraugunum eða heyrnartólunum. Viðskiptavinir og samstarfsfólk þurfa ekki að velta fyrir sér hvort verið sé að mynda.

Fleiri tungumál

Ear Dance appið þýðir samtöl á 165 tungumálum og mállýskum. Fylgir SonaVue og TravelerAI. Þarf netsamband.

Ekki hlífðarbúnaður. SonaVue eru hvorki öryggisgleraugu né heyrnarhlífar og koma ekki í stað þeirra. Fylgið alltaf kröfum vinnustaðarins um hlífðarbúnað.

Dæmi eftir störfum

Veldu starf til að sjá hvaða vara hentar og af hverju. Litur hvers dæmis er litur umbúðanna á vörunni.

Kona við skrifborð á skrifstofu með fartölvu og SonaVue Classic lesgleraugu

Símtöl við skrifborðið og á milli funda

Gleraugun eru þegar á nefinu. Starfsmaðurinn svarar, talar og heyrir áfram þegar einhver kemur að borðinu.

  • Lesgleraugu í styrk +1,0, +1,5 og +2,0 fyrir skjávinnu
  • Blágeislavörn í öllum glerjum
  • Fundarglósur og samantektir í Ear Dance appinu
SonaVue Classic, lesgleraugu
Hentar bestSonaVue Classic, lesglerauguListaverð, lesgleraugu 19.990 kr.
Fá tilboð fyrir þetta starf

Jona og K-Man: skýr símtöl í hávaða

  • Classic
  • Jona
  • K-Man

Tvær af þremur SonaVue umgjörðum eru með hávaðadeyfingu (ENC) í símtölum. Hún dregur úr umhverfishljóði í hljóðnemunum, svo sá sem þú talar við heyrir röddina þína en ekki lyftarann, umferðina eða kliðinn í kring.

Þetta hentar þeim sem taka mörg símtöl þar sem mikið er að gerast: á lager, í verslun á annatíma eða á ferðinni.

Hávaðadeyfingin hjálpar viðmælandanum. Hún dempar ekki hávaðann í kringum þig og kemur ekki í stað heyrnarhlífa.

Kona gengur út af verkstæði með spjaldtölvu og SonaVue K-Man gleraugu

Samanburður

Gleraugun og heyrnartólin hlið við hlið. Á síma má strjúka töflunni til hliðar.

ClassicSonaVue snjallglerauguJonaSvart eða skjaldbökumynsturK-ManSvart eða skjaldbökumynsturTravelerAIOpin heyrnartól
Listaverð frá14.990 kr.24.990 kr.skjaldbaka 31.990 kr.24.990 kr.skjaldbaka 31.990 kr.9.990 kr.
Handfrjáls símtölJáJáJáJá
Hávaðadeyfing í símtölumNeiJáJáNei
Opin hlustunJáJáJáJá
Þýðing í Ear DanceJáJáJáJá
MyndavélEnginEnginEnginEngin
Apple „Find My“NeiJáJáNei
Rafhlaða, tónlistUm 11 klst.Um 10 klst.Um 10 klst.Um 7 klst. hvort
VörnIP54IP54IP54Engin
Hentar bestSkrifstofa, þrifMörg símtöl, val um skjaldbökumynsturMörg símtöl í hávaða, aksturFjöltyngd teymi, móttaka, hagkvæmt fyrir hópa

Listaverð eru leiðbeinandi smásöluverð með VSK. Fyrirtæki fá tilboð eftir fjölda. SonaVue og TravelerAI eru heyrnarstuðningur, ekki heyrnartæki. Um Elevate heyrnartækið, sjá neðst á síðunni.

Nánar um vörurnar

Allar tæknilýsingar, litir og appið. Opnaðu það sem skiptir þig máli.

SonaVue: þrjár umgjarðirClassic, Jona og K-Man · litir, gler og tæknilýsing

Allar þrjár eru með hljóð og hljóðnema fyrir símtöl. Jona og K-Man bæta við hávaðadeyfingu í símtölum, „Find My“ og umgjörð úr asetati. Hver umgjörð fæst með glerjum sem dökkna í sól, sem sólgleraugu eða sem lesgleraugu.

SonaVue Classic, Svart

Classic

Akrýlumgjörð. Hagkvæmasta umgjörðin.

Listaverð
frá 14.990 kr.
Hávaðadeyfing í símtölum
Nei
Kveikja sjálfkrafa á sér
Nei
Apple „Find My“
Nei
Vörn
IP54
Rafhlaða, tónlist
Um 11 klst.
Rafhlaða, símtöl
Um 9 klst.
SonaVue Classic, lesglerauguSonaVue ClassicSonaVue Classic
SonaVue Jona, Svart

JonaHávaðadeyfing (ENC)

Umgjörð úr gljáandi asetati.

Listaverð
frá 24.990 kr.
Hávaðadeyfing í símtölum
Já
Kveikja sjálfkrafa á sér
Já
Apple „Find My“
Já
Vörn
IP54
Rafhlaða, tónlist
Um 10 klst.
Rafhlaða, símtöl
Um 8 klst.
SonaVue Jona
SonaVue K-Man, Svart

K-ManHávaðadeyfing (ENC)

Umgjörð úr gljáandi asetati.

Listaverð
frá 24.990 kr.
Hávaðadeyfing í símtölum
Já
Kveikja sjálfkrafa á sér
Já
Apple „Find My“
Já
Vörn
IP54
Rafhlaða, tónlist
Um 10 klst.
Rafhlaða, símtöl
Um 8 klst.
SonaVue K-ManSonaVue K-Man, sólgleraugu

GlerLesgleraugu +1,0, +1,5 og +2,0Gler sem dökkna í sólSólglerauguUV400 og blágeislavörnFást ekki með sjónglerjum

TravelerAI: opin heyrnartól á góðu verðiTónlist, símtöl og þýðing · þrjú hleðsluhulstur
TravelerAI opin heyrnartól, svört
TravelerAIListaverð frá 9.990 kr.

Fyrst og fremst góð heyrnartól fyrir tónlist, hlaðvörp og símtöl. Þau sitja utan við hlustina, svo starfsfólk heyrir áfram í umhverfinu. Þýðing á 165 tungumálum og mállýskum fylgir með í Ear Dance appinu.

Hljóðnemar
2, fyrir símtöl og þýðingu
Rafhlaða
Um 7 klst. á hvoru heyrnartóli
Þyngd
9 g hvort heyrnartól
Bluetooth
5.4
Stjórnun
Snerting: svara, spila, sleppa lagi
Vatnsvörn
Engin
TravelerAI9.990 kr.
Spinner11.990 kr.
TravelerAI+með skjá á hulstri · 14.990 kr.
Ear Dance appið: meira en þýðingGervigreind, fundarglósur, túlkun · fylgir SonaVue og TravelerAI

Ókeypis app sem fylgir SonaVue og TravelerAI, með æviáskrift í hverjum pakka. Tónlist og símtöl virka án þess; appið bætir við þýðingu, gervigreind og glósum.

Gervigreindaraðstoð

SonaVue og TravelerAI

Spurðu spurninga og fáðu svar með rödd eða texta, beint í eyrað.

Fundarglósur

SonaVue og TravelerAI

Raddglósur eru skrifaðar upp, dregnar saman með gervigreind og settar fram sem hugarkort. Hægt að flytja út á nokkrum sniðum.

Samtímatúlkun

SonaVue og TravelerAI

Samfelld uppskrift og þýðing á fundum og kynningum.

Samtal augliti til auglitis

SonaVue og TravelerAI

Þú heyrir þýðinguna í eyrunum, viðmælandinn talar við símann og les af skjánum.

Frjálst spjall

Aðeins TravelerAI

Hvor aðili setur upp sitt heyrnartól og talar á sínu máli.

Myndþýðing

Í símanum

Beindu myndavél símans að skilti, leiðbeiningum eða matseðli og fáðu textann þýddan.

Þýðing og gervigreind þurfa net- eða farsímasamband. Ear Dance er gefið út af þriðja aðila og hefur eigin persónuverndarstefnu. Fáið leyfi áður en samtal er tekið upp og treystið ekki á sjálfvirka þýðingu fyrir upplýsingar sem varða öryggi.

Fyrirspurn og tilboð

Segðu okkur hvað starfsfólkið gerir og hversu mörg eintök gætu þurft.

  1. Við förum yfir fyrirspurnina og höfum samband ef eitthvað vantar.
  2. Þú færð tilboð, yfirleitt innan eins virks dags.
  3. Við afhendum, aðstoðum við uppsetningu á Ear Dance og fylgjum eftir til að heyra hvernig gengur.

Spurningar strax?Sendu póst á support@harmonix.is

Vörur sem vekja áhuga
* nauðsynlegt. Við notum upplýsingarnar aðeins til að svara fyrirspurninni. Persónuvernd

Algengar spurningar

Getum við keypt fyrir allt teymið?

Já. Sendu fyrirspurn með áætluðum fjölda og vörum og við svörum með tilboði, yfirleitt innan eins virks dags.

Fást gleraugun með sjónglerjum?

Nei. SonaVue fást sem lesgleraugu (styrkur +1,0, +1,5 og +2,0), með glerjum sem dökkna í sól og sem sólgleraugu.

Virkar þýðingin án netsambands?

Nei. Þýðing í Ear Dance þarf net- eða farsímasamband.

Er íslenska á meðal tungumálanna?

Já. Íslenska er eitt af 165 tungumálum og mállýskum í Ear Dance.

Þola gleraugun bleytu?

Þau eru með IP54 ryk- og skvettuvörn. Þau þola skvettur en eru ekki vatnsheld. TravelerAI eru ekki með vatnsvörn.

Er hægt að prófa áður en við kaupum?

Já, ef óskað er. Nefndu það í fyrirspurninni og við finnum út úr því með ykkur.

Hvernig eru ábyrgð og skil?

Sömu skilmálar gilda fyrir fyrirtæki og í vefversluninni. Ábyrgð · Skil

Elevate heyrnartæki og hleðsluhulstur

Heyrnarheilsa starfsfólks

Stundum er það í vinnunni sem fólk tekur fyrst eftir því að heyrnin hefur breyst: á fundum, í símanum eða í kliðnum í mötuneytinu.

Elevate er CE-vottað heyrnartæki með sjálfstillingu fyrir fullorðna 18 ára og eldri með væga til miðlungsmikla heyrnarskerðingu að eigin mati. Starfsmaðurinn stillir það sjálfur í Harmonix OTC appinu, svo vinnustaðurinn fær engar upplýsingar um heyrn viðkomandi.

Umbúðir ElevateListaverð 49.990 kr.

Sem starfsmannaávinningur: fyrirtækið greiðir, starfsmaðurinn fær tækið og stillir það sjálfur. Hakaðu við Elevate í fyrirspurninni og við gerum tilboð.

Elevate er eina heyrnartækið frá Harmonix. SonaVue og TravelerAI eru heyrnarstuðningur, ekki heyrnartæki.

Kona hlær með vinkonu við garðborð í kvöldsól

Fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun.

Hvað ertu að skoða?

Gildir á allar vörur.