
Símtal í hávaða, án þess að hækka róminn.
Þrír stefnuvirkir hljóðnemar vinna saman með hávaðadeyfingu fyrir símtöl (ENC), til að draga úr bakgrunnshávaða og láta rödd þína heyrast betur hjá þeim sem þú talar við.
Dragðu til að snúaVandaður hljómur. Skýr símtöl. Gleraugu með karakter.
Fyrir þá sem nota ekki gleraugu með styrk. Glerin eru glær innandyra og dökkna sjálf í sól. Glerin eru með UV400-vörn og blágeislavörn.
29.990 kr.með VSK
Til á lager
SonaVue eru hljóðgleraugu fyrir daglega hlustun — ekki heyrnartæki og gera engar læknisfræðilegar fullyrðingar. Lesgleraugu eru með fasta stækkun sem fæst í lausasölu; þau eru ekki sérsniðin gleraugu með lyfseðli.
Vandaður hljómur. Skýr símtöl. Gleraugu með karakter. Harmonix SonaVue Jona eru gleraugu með innbyggðum hátölurum fyrir þá sem leggja áherslu á hljóðgæði og vandaða hönnun. Ávalar línur og gljáandi umgjörð úr asetati gefa gleraugunum fágað yfirbragð, með tónlistina og símtölin innan seilingar. Jona eru úr úrvalslínu SonaVue, með nýrri hljóðvinnslu og bættum hljómgæðum miðað við Classic grunnlínuna. Gleraugun kveikja sjálfkrafa á sér þegar þú setur þau upp. Með Apple „Find My“ geturðu einnig leitað að gleraugunum í iPhone-símanum þínum.
Inniheldur æviáskrift að Ear Dance appinu – bein þýðing á 165 tungumálum. Engin aukakaup.
Rekjanleg sending til Íslands, Bretlands og Bandaríkjanna. Þú hefur 30 daga frá afhendingu til að skila SonaVue í upprunalegu ástandi. Ábyrgðarskírteini er í hverjum kassa.
Stefnuvirkir hátalarar í örmunum beina hljóðinu að eyrunum í stað þess að loka þeim. Þú heyrir áfram í umferð, dyrabjöllum og fólkinu í kringum þig.


Þrír stefnuvirkir hljóðnemar vinna saman með hávaðadeyfingu fyrir símtöl (ENC), til að draga úr bakgrunnshávaða og láta rödd þína heyrast betur hjá þeim sem þú talar við.

Tónlist eða símtal á meðan þú vinnur, á styrk sem næsta borð heyrir ekki. Þegar kallað er á þig heyrirðu það.

Þú heyrir umferðina, fuglana og fólkið sem gengur með þér – og hlaðvarpið á sama tíma.
Opin hlustun, þýðing og IP54-vörn eru í öllum þremur. Jona og K-Man eru úrvalslína SonaVue, með nýrri hljóðvinnslu, bættum hljómgæðum og hávaðadeyfingu í símtölum.
Meðfylgjandi segulsnúra tengist við venjulega USB-C-snúru; USB-C-snúra og hleðslutæki fylgja ekki með.
Nei. SonaVue eru hljóðgleraugu með opinni hlustun fyrir fólk með góða heyrn sem vill tónlist, símtöl og rauntímaþýðingu án þess að loka heiminn úti. Þau eru ekki heyrnartæki og eru ekki ætluð til að bregðast við heyrnarskerðingu. Fyrir það, kynntu þér Harmonix Elevate — heyrnartæki með sjálfstillingu.
Já. Classic er með tvo stefnuvirka hljóðnema. Jona er með þrjá og K-Man tvo, og báðar þessar gerðir eru með hávaðadeyfingu. Þú svarar símtölum og leggur á með snertistýringunni á arminum.
Jona og K-Man virka með Apple „Find My“-appinu í iPhone, svo þú getur séð hvar þú skildir gleraugun eftir síðast. Eiginleikinn er ekki í boði fyrir Android eða Classic-gleraugun.
Jona og K-Man kveikja sjálfkrafa á sér þegar þú opnar armana og setur gleraugun á þig. Classic-umgjörðin er með venjulegum takka til að kveikja og slökkva.
Allar þrjár SonaVue-umgjarðirnar eru með IP54 ryk- og skvettuvörn, en þær eru ekki vatnsheldar. Ekki fara með þær í sund eða sturtu og dýfðu þeim ekki í vatn. Gættu þess að hleðslusnúran sé alltaf þurr og þurrkaðu gleraugun vel ef þau blotna í rigningu.
Já, en með varúð. Það er í lagi að gera smávægilegar stillingar á nefbrúnni og framhliðinni. Armarnir innihalda hins vegar rafeindabúnað og því má alls ekki hita þá eða beygja.
Asetat heldur gljáanum best ef þú þurrkar reglulega af því. Forðastu að spreyja hárvörum eða sólarvörn beint á umgjörðina og geymdu gleraugun í hulstrinu.
Um 10 klst. af streymi á fullri hleðslu um Bluetooth 5.4 og um 8 klst. í handfrjálsum símtölum. HWA-línan endist ögn lengur — um 11 og 9 klst. Full hleðsla tekur um einn og hálfan tíma.
Ear Dance-appið styður 165 tungumál og mállýskur í þýðingu. Listinn uppfærist eftir því sem appið þróast — kíktu í appið til að sjá núverandi úrval.