Heyrnartæki
Harmonix Elevate
Ný kynslóð heyrnartækja
Heyrnartæki sem þú stillir í appi. Ætluð fullorðnum (18 ára og eldri) með væga til miðlungs heyrnarskerðingu.
30 daga skilaréttur Ef þú skiptir um skoðun hefurðu 30 daga frá afhendingu til að skila þeim. Notaðu tækin í 30 daga. Ef þau eiga ekki við sendirðu þau til baka.
“Ég ákvað að prófa Elevate aðallega út af verðinu og vissi satt að segja ekkert alveg hverju ég ætti að búast við. Þau hafa komið mér virkilega á óvart og ég nota þau mikið dagsdaglega, bæði við skrifstofustörf og á fundum. Mjög ánægður með vöruna og get klárlega mælt með þeim.”
Baldur Guðgeirsson · Reykjavík
“Elevate hafa gjörbreytt lífinu mínu. Ég hafði ekki hugmynd um þau lífsgæði sem mig skorti alla daga. Sé lífið í nýju ljósi og gæti ekki mælt meira með Elevate”
Einar Örn Sigurjónsson · Selfoss
- Sjálfstilling í appiEngin tímabókun
- Yfir 12 klst.á hleðslu, Bluetooth af
- Þjónustuteymi til takssupport@harmonix.is
- Rekjanleg sending
- 30 daga skilaréttur
- Hannað á Íslandi
Látlaus hönnun
Stuðningur sem lætur lítið fyrir sér fara.
Elevate-heyrnartækin líta út eins og nútímaleg þráðlaus heyrnartól og stuðningurinn sem þú þarft kemur því engum öðrum við. Þú setur þau í eyrun og leggur þau svo aftur í hulstrið í hleðslu — sama einfalda rútínan og þú þekkir nú þegar.
- Lögun
- Eins og þráðlaus heyrnartól
- Litir
- Svart og hvítt
- Hleðsla
- Endurhlaðanlegt hulstur



Fyrir hvern er Elevate?
Kannast þú við þetta?

Á kaffihúsi eða þar sem margir tala í einu missirðu þráðinn.

Kvöld í fjölmenni skilja eftir þreytu — það tekur á að hlusta.

Þú þarft oftar að biðja fólk að endurtaka sig.
Elevate hentar
- Fullorðnum, 18 ára og eldri.
- Með væga til miðlungs heyrnarskerðingu.
- Þeim sem vilja stilla tækin sjálf heima, án tímabókunar.
Ekki viss ennþá? Lesa um heyrnarheilsu
Elevate hentar ekki
- Elevate er ekki ætlað þeim sem eru yngri en 18 ára.
- Ekki fyrir alvarlega eða djúpa heyrnarskerðingu.
- Leitaðu til læknis ef heyrnin versnar skyndilega, er verri á öðru eyranu, eða ef verkur, útferð eða suð fylgir.
Samantekt úr notendaleiðbeiningunum. Öryggisupplýsingar um Elevate
Svona virkar það
Úr kassanum í betri heyrn — í þremur skrefum.

Sæktu Harmonix OTC-appið
Tengdu bæði heyrnartækin við appið.

Taktu stutt heyrnarpróf
Appið leiðir þig í gegnum heyrnarpróf í rólegu umhverfi.

Stilltu tækin að þínum eyrum
Appið aðlagar stillingar hvors tækis að niðurstöðunum. Þú getur síðan fínstillt hljóðið eftir þörfum — engin heimsókn til heyrnarfræðings nauðsynleg.
Sæktu Harmonix OTC-appið í App Store eða Google Play.
Dagleg notkun
Hvernig er að eiga þau.

Úr hulstrinu
Þau fara í biðstöðu þegar þau eru tekin úr eyrunum og slökkva á sér þegar þau eru sett í hleðsluhulstrið.

Í eyrað
Sex eyrnatappar í mismunandi stærðum fylgja, svo þú finnur þann sem situr best. Ef tækið flautar skaltu prófa aðra stærð.

Hnapparnir
Hækkaðu eða lækkaðu með + og −. Haltu + inni til að skipta á milli fjögurra hlustunarstillinga.

Hleðsla
Yfir 12 klst. á hleðslu þegar slökkt er á Bluetooth. Hulstrið hleður þau á milli nota.
Þurrkaðu daglega af skeljunum með mjúkum, þurrum klút. IP64 — rykþétt og skvettuhelt, en dýfðu þeim ekki í kaf.
Gefðu þeim nokkrar vikur.
- Dagur 1
Uppsetning
Heyrnarpróf í appinu stillir hvort tæki að þér.
- Fyrstu dagarnir
Prófaðu þau í raunheimum
Notaðu þau í samtölum og við sjónvarpið og fínstilltu eftir þörfum.
- Næstu vikur
Þú venst þeim
Flestir þurfa nokkrar vikur af reglulegri notkun áður en Elevate fer að finnast eðlilegt.
- Innan 30 daga
Þú ákveður
30 dagar frá afhendingu til að skipta um skoðun.
- Áfram
Ný mæling
Endurtaktu mælinguna hvenær sem þú vilt fá nýja stillingu.
Heyrnartæki hjálpar þér að nýta betur þá heyrn sem þú hefur. Það færir heyrnina ekki í fyrra horf og breytir ekki undirliggjandi orsök heyrnarskerðingarinnar — það getur áfram reynst erfitt að heyra þar sem mikill kliður er.
Tvær leiðir
Engin tímabókun. Ekkert mátunargjald.
| Hefðbundna leiðin | Með Elevate | |
|---|---|---|
| Þú bókar tíma hjá heyrnarfræðingi. | Engin tímabókun — tækin koma heim til þín. | |
| Löggiltur heyrnarfræðingur mælir heyrnina og stillir tækin. | Appið leiðir þig í gegnum heyrnarpróf í rólegu umhverfi og aðlagar stillingar hvors tækis að niðurstöðunum. | |
| Eftirfylgni er bókuð hjá heyrnarfræðingnum. | Þú getur síðan fínstillt hljóðið eftir þörfum. | |
| Oft er hægt að fá tæki til prufu í nokkrar vikur. | 30 dagar frá afhendingu til að skipta um skoðun. |
- Áður en þú kaupir
- Þjónustuteymið okkar er til taks — hafðu samband fyrir nánari upplýsingar eða til að óska eftir símtali: support@harmonix.is.
- Aðstoð við uppsetningu
- Viljir þú aðstoð við sjálfstillinguna förum við í gegnum hana með þér, skref fyrir skref.
- Ábyrgð innifalin
- Samkvæmt ábyrgðarskírteininu sem fylgir með. Rekjanleg sending. Örugg greiðsla.
Það sem fylgir með
Það sem fylgir.
- Eitt par af Harmonix Elevate-heyrnartækjum
- Endurhlaðanlegt hleðsluhulstur
- USB-hleðslusnúra
- Sex eyrnatappar í mismunandi stærðum
- Notkunarleiðbeiningar
Aukavaxhlífar fást hjá þjónustuverinu okkar — þú skiptir um þær eftir þörfum. Panta vaxhlífar
Í hnotskurn
Tæknilýsingar
- Lögun
- Eins og þráðlaus heyrnartól
- Litir
- Svart og hvítt
- Ryk- og skvettuvarið
- IP64
- Ending á hleðslu
- >12h þegar slökkt er á Bluetooth
- Bluetooth
- 5.0
- App
- Harmonix OTC · iOS og Android
Algengar spurningar
Það sem fólk spyr að.
Þarf ég að fara til heyrnarfræðings fyrst?
Nei. Elevate er sjálfstillanlegt: heyrnarmælingin fer fram í appinu og tækin stilla sig eftir niðurstöðunni. Ef þú hefur áhyggjur af heyrninni er samt alltaf gott að ræða við fagfólk.
Hvernig veit ég hvort heyrnarskerðingin mín sé væg eða miðlungsmikil?
Mælingin í appinu gefur þér vísbendingu. Ef þú heyrir illa á aðeins öðru eyranu, eða heyrnin versnaði skyndilega, á Elevate ekki við — leitaðu þá til læknis.
Þarf ég appið?
Já, til að setja þau upp. Harmonix OTC-appið sér um heyrnarmælinguna og stillir heyrnartækin fyrir þig. Með hnöppunum á tækjunum velurðu á milli fjögurra hlustunarstillinga og stillir hljóðstyrk án þess að taka upp símann.
Hvaða símar virka með Elevate?
iPhone og Android. Leitaðu að „Harmonix OTC“ í App Store eða Google Play.
Get ég svarað símtölum og streymt tónlist?
Já. Elevate tengjast einnig snjallsíma með Bluetooth svo þú getir hlustað á tónlist, hlaðvörp og hljóðbækur eða tekið símtöl. Þú svarar símtölum með takkanum.
Hvað ef þau hjálpa mér ekki?
Þú hefur 30 daga frá afhendingu og þú átt að nota tækin á þeim tíma — það er tilgangur 30 daganna. Ef Elevate á ekki við þig sendirðu það til baka.
Þarf ég lyfseðil?
Nei. Elevate er keypt án lyfseðils og án tímabókunar.
Fleiri spurningar og bilanaleit
Hvað endist rafhlaðan lengi?
Rafhlaðan endist í yfir 12 klst. á hleðslu þegar Bluetooth er aftengt, og hulstrið hleður tækin aftur á milli notkunar. Raunveruleg ending fer eftir notkun, stillingum og hljóðumhverfi.
Má nota þau í rigningu?
Þau eru með IP64-vottun — rykþétt og skvettuheld — en haltu þeim þurrum og dýfðu þeim ekki í kaf.
Get ég breytt stillingum án appsins?
Já. Þú ýtir á takkana á heyrnartækinu til að breyta hljóðstyrk og heldur takkanum inni til að skipta milli stillinga. Þau muna síðustu stillingu.
Greinir heyrnarmælingin heyrnarskerðingu?
Nei. Heyrnarmælingin í appinu er ætluð til að stilla tækin og kemur ekki í stað heyrnarrannsóknar hjá fagfólki. Ef heyrnin breytist skyndilega, eða breytingin er aðeins á öðru eyranu, skaltu leita til læknis.
Get ég samt leitað til heyrnarfræðings?
Já, hvenær sem er. Margir byrja á að nota Elevate heima og leita síðar til fagfólks til að vera alveg viss.
Fæ ég eðlilega heyrn aftur með Elevate?
Ekkert heyrnartæki færir heyrnina í fyrra horf. Elevate auðveldar fullorðnum með væga til miðlungsalvarlega heyrnarskerðingu að eigin mati að heyra tal og hljóðin í kringum sig.
Hversu oft á ég að skipta um eyrnatappa?
Á þriggja til sex mánaða fresti, eða fyrr ef þeir verða stífir, stökkir eða upplitast.
Hvernig hreinsa ég Elevate-heyrnartækin?
Notaðu hreinsiverkfærið sem fylgir með til að fjarlægja eyrnamerg og þurrkaðu svo af með mjúkum, þurrum klút. Ekki nota spritt eða hreinsiúða.
Pörunin klárast ekki
Taktu bæði heyrnartækin úr hulstrinu, hafðu kveikt á Bluetooth í símanum og fylgdu leiðbeiningunum í appinu. Forritið staðfestir þegar bæði eru tengd.
Heyrnarmælingin fer ekki af stað
Forritið mælir umhverfishljóðið fyrst og fer ekki af stað ef of mikill kliður er í kring. Finndu hljóðlátari stað og reyndu aftur.
Hljóðið er lágt eða óskýrt
Stífluð vaxhlíf er algengasta ástæðan. Athugaðu vaxhlífarnar og hvelfingarnar og skiptu um þær ef þær virðast stíflaðar.
Tækið flautar eða gefur frá sér hátt hljóð
Þá þéttir eyrnatappinn ekki nógu vel og er nær alltaf í rangri stærð. Prófaðu aðra stærð — sex fylgja með. Ef það dugar ekki, sendu okkur póst á support@harmonix.is og við finnum réttu stærðina með þér.
Ég finn ekki appið
Það heitir Harmonix OTC og fæst í App Store og Google Play.
Heyrnarmælingin virkar en tónlist spilast ekki
Að tengjast í appinu og para fyrir tónlist eru tvö aðskilin skref. Fyrir tónlist og símtöl skaltu einnig para „Harmonix Elevate“ í Bluetooth-stillingum símans.
Ef ekkert af þessu dugar fer þjónustuteymið okkar í gegnum þetta með þér.
Frá viðskiptavinum okkar
Þeirra eigin orð.
Birt með leyfi, orðrétt og óbreytt.
“Ég ákvað að prófa Elevate aðallega út af verðinu og vissi satt að segja ekkert alveg hverju ég ætti að búast við. Þau hafa komið mér virkilega á óvart og ég nota þau mikið dagsdaglega, bæði við skrifstofustörf og á fundum. Mjög ánægður með vöruna og get klárlega mælt með þeim.”
Baldur GuðgeirssonReykjavík “Elevate hafa gjörbreytt lífinu mínu. Ég hafði ekki hugmynd um þau lífsgæði sem mig skorti alla daga. Sé lífið í nýju ljósi og gæti ekki mælt meira með Elevate”
Einar Örn SigurjónssonSelfoss

Harmonix Elevate
Frá 49.990 kr.
Notaðu tækin í 30 daga. Ef þau eiga ekki við sendirðu þau til baka.
- Rekjanleg sending
- 30 daga skilaréttur
- Hannað á Íslandi










