30 daga skilaréttur — Ísland, Bretland, Bandaríkin
Fara beint í efnið
Harmonix
Elevate Ice White í opnu hulstri
Bæði tækin, hvít, frá hlið
Bæði tækin, hvít, framan frá
Hvít tæki aftan frá
Svart Elevate við hulstrið
Hvít tæki í dagsbirtu
Nærmynd af hnöppunum
Maður á kaffihúsi í Reykjavík með Elevate
Kona í garði með hvítt Elevate
Maður að spila á spil með svart Elevate
Tæki sett í eyrað
Tæki tekin úr hulstri
Tvö hvít tæki í lófa
1 / 13

Heyrnartæki

Harmonix Elevate

Ný kynslóð heyrnartækja

Heyrnartæki sem þú stillir í appi. Ætluð fullorðnum (18 ára og eldri) með væga til miðlungs heyrnarskerðingu.

49.990 kr.með VSK
ValkosturIce White

30 daga skilaréttur Ef þú skiptir um skoðun hefurðu 30 daga frá afhendingu til að skila þeim. Notaðu tækin í 30 daga. Ef þau eiga ekki við sendirðu þau til baka.

  • “Ég ákvað að prófa Elevate aðallega út af verðinu og vissi satt að segja ekkert alveg hverju ég ætti að búast við. Þau hafa komið mér virkilega á óvart og ég nota þau mikið dagsdaglega, bæði við skrifstofustörf og á fundum. Mjög ánægður með vöruna og get klárlega mælt með þeim.”

    Baldur Guðgeirsson · Reykjavík

  • “Elevate hafa gjörbreytt lífinu mínu. Ég hafði ekki hugmynd um þau lífsgæði sem mig skorti alla daga. Sé lífið í nýju ljósi og gæti ekki mælt meira með Elevate”

    Einar Örn Sigurjónsson · Selfoss

  • Sjálfstilling í appiEngin tímabókun
  • Yfir 12 klst.á hleðslu, Bluetooth af
  • Þjónustuteymi til takssupport@harmonix.is
  • Rekjanleg sending
  • 30 daga skilaréttur
  • Hannað á Íslandi

Látlaus hönnun

Stuðningur sem lætur lítið fyrir sér fara.

Elevate-heyrnartækin líta út eins og nútímaleg þráðlaus heyrnartól og stuðningurinn sem þú þarft kemur því engum öðrum við. Þú setur þau í eyrun og leggur þau svo aftur í hulstrið í hleðslu — sama einfalda rútínan og þú þekkir nú þegar.

Lögun
Eins og þráðlaus heyrnartól
Litir
Svart og hvítt
Hleðsla
Endurhlaðanlegt hulstur

Fyrir hvern er Elevate?

Kannast þú við þetta?

  • Á kaffihúsi eða þar sem margir tala í einu missirðu þráðinn.

  • Kvöld í fjölmenni skilja eftir þreytu — það tekur á að hlusta.

  • Þú þarft oftar að biðja fólk að endurtaka sig.

Elevate hentar

  • Fullorðnum, 18 ára og eldri.
  • Með væga til miðlungs heyrnarskerðingu.
  • Þeim sem vilja stilla tækin sjálf heima, án tímabókunar.

Ekki viss ennþá? Lesa um heyrnarheilsu

Elevate hentar ekki

  • Elevate er ekki ætlað þeim sem eru yngri en 18 ára.
  • Ekki fyrir alvarlega eða djúpa heyrnarskerðingu.
  • Leitaðu til læknis ef heyrnin versnar skyndilega, er verri á öðru eyranu, eða ef verkur, útferð eða suð fylgir.

Samantekt úr notendaleiðbeiningunum. Öryggisupplýsingar um Elevate

Svona virkar það

Úr kassanum í betri heyrn — í þremur skrefum.

  1. Upphafsskjár Harmonix OTC-appsins með bæði heyrnartækin tengd

    Sæktu Harmonix OTC-appið

    Tengdu bæði heyrnartækin við appið.

  2. Heyrnarpróf í Harmonix OTC-appinu: tónn er spilaður og þú svarar hvort þú heyrir hann

    Taktu stutt heyrnarpróf

    Appið leiðir þig í gegnum heyrnarpróf í rólegu umhverfi.

  3. Tónjafnari í Harmonix OTC-appinu fyrir vinstra og hægra tæki

    Stilltu tækin að þínum eyrum

    Appið aðlagar stillingar hvors tækis að niðurstöðunum. Þú getur síðan fínstillt hljóðið eftir þörfum — engin heimsókn til heyrnarfræðings nauðsynleg.

Sæktu Harmonix OTC-appið í App Store eða Google Play.

Dagleg notkun

Hvernig er að eiga þau.

Úr hulstrinu

Þau fara í biðstöðu þegar þau eru tekin úr eyrunum og slökkva á sér þegar þau eru sett í hleðsluhulstrið.

Í eyrað

Sex eyrnatappar í mismunandi stærðum fylgja, svo þú finnur þann sem situr best. Ef tækið flautar skaltu prófa aðra stærð.

Hnapparnir

Hækkaðu eða lækkaðu með + og −. Haltu + inni til að skipta á milli fjögurra hlustunarstillinga.

Hleðsla

Yfir 12 klst. á hleðslu þegar slökkt er á Bluetooth. Hulstrið hleður þau á milli nota.

Þurrkaðu daglega af skeljunum með mjúkum, þurrum klút. IP64 — rykþétt og skvettuhelt, en dýfðu þeim ekki í kaf.

Gefðu þeim nokkrar vikur.

  1. Dagur 1

    Uppsetning

    Heyrnarpróf í appinu stillir hvort tæki að þér.

  2. Fyrstu dagarnir

    Prófaðu þau í raunheimum

    Notaðu þau í samtölum og við sjónvarpið og fínstilltu eftir þörfum.

  3. Næstu vikur

    Þú venst þeim

    Flestir þurfa nokkrar vikur af reglulegri notkun áður en Elevate fer að finnast eðlilegt.

  4. Innan 30 daga

    Þú ákveður

    30 dagar frá afhendingu til að skipta um skoðun.

  5. Áfram

    Ný mæling

    Endurtaktu mælinguna hvenær sem þú vilt fá nýja stillingu.

Heyrnartæki hjálpar þér að nýta betur þá heyrn sem þú hefur. Það færir heyrnina ekki í fyrra horf og breytir ekki undirliggjandi orsök heyrnarskerðingarinnar — það getur áfram reynst erfitt að heyra þar sem mikill kliður er.

Tvær leiðir

Engin tímabókun. Ekkert mátunargjald.

Hefðbundna leiðinMeð Elevate
Þú bókar tíma hjá heyrnarfræðingi.Engin tímabókun — tækin koma heim til þín.
Löggiltur heyrnarfræðingur mælir heyrnina og stillir tækin.Appið leiðir þig í gegnum heyrnarpróf í rólegu umhverfi og aðlagar stillingar hvors tækis að niðurstöðunum.
Eftirfylgni er bókuð hjá heyrnarfræðingnum.Þú getur síðan fínstillt hljóðið eftir þörfum.
Oft er hægt að fá tæki til prufu í nokkrar vikur.30 dagar frá afhendingu til að skipta um skoðun.
Áður en þú kaupir
Þjónustuteymið okkar er til taks — hafðu samband fyrir nánari upplýsingar eða til að óska eftir símtali: support@harmonix.is.
Aðstoð við uppsetningu
Viljir þú aðstoð við sjálfstillinguna förum við í gegnum hana með þér, skref fyrir skref.
Ábyrgð innifalin
Samkvæmt ábyrgðarskírteininu sem fylgir með. Rekjanleg sending. Örugg greiðsla.

Það sem fylgir með

Það sem fylgir.

  • Eitt par af Harmonix Elevate-heyrnartækjum
  • Endurhlaðanlegt hleðsluhulstur
  • USB-hleðslusnúra
  • Sex eyrnatappar í mismunandi stærðum
  • Notkunarleiðbeiningar

Aukavaxhlífar fást hjá þjónustuverinu okkar — þú skiptir um þær eftir þörfum. Panta vaxhlífar

Í hnotskurn

Tæknilýsingar

Lögun
Eins og þráðlaus heyrnartól
Litir
Svart og hvítt
Ryk- og skvettuvarið
IP64
Ending á hleðslu
>12h þegar slökkt er á Bluetooth
Bluetooth
5.0
App
Harmonix OTC · iOS og Android

Algengar spurningar

Það sem fólk spyr að.

Þarf ég að fara til heyrnarfræðings fyrst?

Nei. Elevate er sjálfstillanlegt: heyrnarmælingin fer fram í appinu og tækin stilla sig eftir niðurstöðunni. Ef þú hefur áhyggjur af heyrninni er samt alltaf gott að ræða við fagfólk.

Hvernig veit ég hvort heyrnarskerðingin mín sé væg eða miðlungsmikil?

Mælingin í appinu gefur þér vísbendingu. Ef þú heyrir illa á aðeins öðru eyranu, eða heyrnin versnaði skyndilega, á Elevate ekki við — leitaðu þá til læknis.

Þarf ég appið?

Já, til að setja þau upp. Harmonix OTC-appið sér um heyrnarmælinguna og stillir heyrnartækin fyrir þig. Með hnöppunum á tækjunum velurðu á milli fjögurra hlustunarstillinga og stillir hljóðstyrk án þess að taka upp símann.

Hvaða símar virka með Elevate?

iPhone og Android. Leitaðu að „Harmonix OTC“ í App Store eða Google Play.

Get ég svarað símtölum og streymt tónlist?

Já. Elevate tengjast einnig snjallsíma með Bluetooth svo þú getir hlustað á tónlist, hlaðvörp og hljóðbækur eða tekið símtöl. Þú svarar símtölum með takkanum.

Hvað ef þau hjálpa mér ekki?

Þú hefur 30 daga frá afhendingu og þú átt að nota tækin á þeim tíma — það er tilgangur 30 daganna. Ef Elevate á ekki við þig sendirðu það til baka.

Þarf ég lyfseðil?

Nei. Elevate er keypt án lyfseðils og án tímabókunar.

Fleiri spurningar og bilanaleit

Hvað endist rafhlaðan lengi?

Rafhlaðan endist í yfir 12 klst. á hleðslu þegar Bluetooth er aftengt, og hulstrið hleður tækin aftur á milli notkunar. Raunveruleg ending fer eftir notkun, stillingum og hljóðumhverfi.

Má nota þau í rigningu?

Þau eru með IP64-vottun — rykþétt og skvettuheld — en haltu þeim þurrum og dýfðu þeim ekki í kaf.

Get ég breytt stillingum án appsins?

Já. Þú ýtir á takkana á heyrnartækinu til að breyta hljóðstyrk og heldur takkanum inni til að skipta milli stillinga. Þau muna síðustu stillingu.

Greinir heyrnarmælingin heyrnarskerðingu?

Nei. Heyrnarmælingin í appinu er ætluð til að stilla tækin og kemur ekki í stað heyrnarrannsóknar hjá fagfólki. Ef heyrnin breytist skyndilega, eða breytingin er aðeins á öðru eyranu, skaltu leita til læknis.

Get ég samt leitað til heyrnarfræðings?

Já, hvenær sem er. Margir byrja á að nota Elevate heima og leita síðar til fagfólks til að vera alveg viss.

Fæ ég eðlilega heyrn aftur með Elevate?

Ekkert heyrnartæki færir heyrnina í fyrra horf. Elevate auðveldar fullorðnum með væga til miðlungsalvarlega heyrnarskerðingu að eigin mati að heyra tal og hljóðin í kringum sig.

Hversu oft á ég að skipta um eyrnatappa?

Á þriggja til sex mánaða fresti, eða fyrr ef þeir verða stífir, stökkir eða upplitast.

Hvernig hreinsa ég Elevate-heyrnartækin?

Notaðu hreinsiverkfærið sem fylgir með til að fjarlægja eyrnamerg og þurrkaðu svo af með mjúkum, þurrum klút. Ekki nota spritt eða hreinsiúða.

Pörunin klárast ekki

Taktu bæði heyrnartækin úr hulstrinu, hafðu kveikt á Bluetooth í símanum og fylgdu leiðbeiningunum í appinu. Forritið staðfestir þegar bæði eru tengd.

Heyrnarmælingin fer ekki af stað

Forritið mælir umhverfishljóðið fyrst og fer ekki af stað ef of mikill kliður er í kring. Finndu hljóðlátari stað og reyndu aftur.

Hljóðið er lágt eða óskýrt

Stífluð vaxhlíf er algengasta ástæðan. Athugaðu vaxhlífarnar og hvelfingarnar og skiptu um þær ef þær virðast stíflaðar.

Tækið flautar eða gefur frá sér hátt hljóð

Þá þéttir eyrnatappinn ekki nógu vel og er nær alltaf í rangri stærð. Prófaðu aðra stærð — sex fylgja með. Ef það dugar ekki, sendu okkur póst á support@harmonix.is og við finnum réttu stærðina með þér.

Ég finn ekki appið

Það heitir Harmonix OTC og fæst í App Store og Google Play.

Heyrnarmælingin virkar en tónlist spilast ekki

Að tengjast í appinu og para fyrir tónlist eru tvö aðskilin skref. Fyrir tónlist og símtöl skaltu einnig para „Harmonix Elevate“ í Bluetooth-stillingum símans.

Ef ekkert af þessu dugar fer þjónustuteymið okkar í gegnum þetta með þér.

Frá viðskiptavinum okkar

Þeirra eigin orð.

Birt með leyfi, orðrétt og óbreytt.

  • “Ég ákvað að prófa Elevate aðallega út af verðinu og vissi satt að segja ekkert alveg hverju ég ætti að búast við. Þau hafa komið mér virkilega á óvart og ég nota þau mikið dagsdaglega, bæði við skrifstofustörf og á fundum. Mjög ánægður með vöruna og get klárlega mælt með þeim.”
    Baldur GuðgeirssonReykjavík
  • “Elevate hafa gjörbreytt lífinu mínu. Ég hafði ekki hugmynd um þau lífsgæði sem mig skorti alla daga. Sé lífið í nýju ljósi og gæti ekki mælt meira með Elevate”
    Einar Örn SigurjónssonEinar Örn SigurjónssonSelfoss

Harmonix Elevate

Frá 49.990 kr.

Notaðu tækin í 30 daga. Ef þau eiga ekki við sendirðu þau til baka.

  • Rekjanleg sending
  • 30 daga skilaréttur
  • Hannað á Íslandi
Kona hlær með vinkonu við garðborð í kvöldsól

Fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun.

Hvað ertu að skoða?

Gildir á allar vörur.